Minningarreitur, fórnarlömb umferðarslysa
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 30
6. mars, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf borgarstjóra dags. 22. nóvember 2018 vegna samþykktar borgarráðs frá 22. nóvember 2018 á eftirfarandi tillögu borgarstjóra: Lagt er til að erindi samgönguráðherra um minningarreit um þá sem hafa látist í umferðarslysum verði vísað til umhverfis- og skipulagssviðs og menningar- og ferðamálasviðs til jákvæðrar meðferðar þar sem m.a. verði horft til heppilegrar staðsetnigar til framtíðar litið.  Vísað til  umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa til meðferðar.