Veðurstofuhæð, nýr mælireitur, nýtt deiliskipulag
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 28
13. febrúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga Kanon arkitekta að nýju deiliskipulagi Veðurstofuhæðar vegna nýs mælireitar. Í tillögunni felst að skilgreind er ný afmörkuð lóð fyrir nýjan mælireit Veðurstofu Íslands. Reiturinn/lóðin verður norðvestan Veðurstofunnar á opnu útivistarsvæði við Minni Öskjuhlíð. Á mælireitnum verða möstur, mælitæki og tengd aðstaða til veðurmælinga og rannsókna. Umhverfis mælireitinn verður opið helgunarsvæð, sem nýtist sem útivistarsvæði, samkvæmt uppdr. Kanon arkitekta ehf. dags. 7. febrúar 2018. Einnig er lögð fram viljayfirlýsing ríkisins og Reykjavíkurborgar dags. 2. júní 2017, samkomulag Reykjavíkurborgar og fjármála- og efnahagsráðuneytisins dags. 23. mars 2018, samningur Reykjavíkurborgar og Veðurstofu Íslands dags. 5. apríl 2018 og minnisblöð Veðurstofu Íslands dags. 18. júní 2017, 10. janúar 2019 og 5. febrúar 2019. Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Gestir
Ingvar Jón Bates Gíslason verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.