Veltusund 3B, breyting á deiliskipulagi
Veltusund 3B (01.140.2)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 31
13. mars, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Lögmanna Sundagörðum dags. 22. mars 2018, f.h. lóðarhafa, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 3B við Veltusund, samkvæmt beiðni  um endurupptöku frá 22. mars 2018. Í breytingunni felst að heimilt er að vera með gististarfsemi á efri hæðum hússins. Einnig er lagt fram minnisblað Daða Björnssonar ódags., úttekt á hlutfalli húsrýmis í notkun til gistiþjónustu Kvosinni dags. 15. apríl 2018 og úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 6. desember 2018. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar. Leiðrétt bókun frá fundi skipulags- og samgönguráðs frá 6.mars 2019. Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2019.  Vísað til borgarráðs. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá og bóka: Miklar breytingar hafa verið á heimildum vegna gististarfssemi í miðborg Reykjavíkur á undanförnum árum. Fjölmargir aðilar hafa unnið að gerð gistiíbúða og fengið samþykktar teikningar hjá borginni. Ástæða er til að endurskoða þær reglur sem í gildi eru með tilliti til þeirrar stöðu sem er í miðborginni. Hætta er á að fjölmargar einingar nýtist illa sem íbúðir og sé bannað að nýta í gistingu. Slíkt gagnast engum. Rétt væri að skoða aðlögun að breyttum veruleika með heildstæðri endurskoðun.  Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins bókar: Miðflokkurinn telur að teknu tilliti til bæði forsögu málsins samkvæmt bréfi lögmanns og sanngirnissjónarmiða að rétt sé að samþykkja umsókn Lögmanna Sundagörðum dags. 22. mars 2018, f.h. lóðarhafa, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 3B við Veltusund, samkvæmt beiðni um endurupptöku frá 22. mars 2018.  Í breytingunni felst að heimilt er að vera með gististarfsemi á efri hæðum hússins. Áheyrnarfulltrúi Flokk fólksins bókar: Flokkur fólksins leggur til að hlustað verði að athugasemdir íbúa í við Furugrund og tekið tillit til þeirrar umræðu er fram fór í Skipulags- og samgönguráði á fundi 30 6. mars 2019. Jafnframt er bent á að byggingamagnið sé of mikið og að nægjanlegt sé að húsin verði aðeins tveggja hæða. Ef um slétt þak á húsunum er að ræða þá er lagt til að hannaður verði garður ofan á húsunum, íbúum þeirra til yndisauka, þar sem lítill möguleiki er á að hafa suðurgarða fyrir framan húsin við Bústaðaveg. Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata bóka: „Umhverfis og skipulagsráð samþykkti í byrjun árs 2015 ákvæði um að hámark hótel- og gistirýmis í Kvosinni mætti ekki vera meira en 23% af fermetrafjölda húsanna á svæðinu. Það stuðlar að nauðsynlegum fyrirsjáanleika fyrir íbúa, uppbyggingaraðila og atvinnulíf. Mikilvægt er að borgaryfirvöld haldi þeirri stefnu sem þarna var tekin. Við teljum mikilvægara að standa vörð um íbúðir fyrir þá sem hér búa og starfa en að fjölga hótel og gistirýmum.“ Rétt bókun er: Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2019.  Vísað til borgarráðs. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá og bóka: Miklar breytingar hafa verið á heimildum vegna gististarfssemi í miðborg Reykjavíkur á undanförnum árum. Fjölmargir aðilar hafa unnið að gerð gistiíbúða og fengið samþykktar teikningar hjá borginni. Ástæða er til að endurskoða þær reglur sem í gildi eru með tilliti til þeirrar stöðu sem er í miðborginni. Hætta er á að fjölmargar einingar nýtist illa sem íbúðir og sé bannað að nýta í gistingu. Slíkt gagnast engum. Rétt væri að skoða aðlögun að breyttum veruleika með heildstæðri endurskoðun.  Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins bókar: Miðflokkurinn telur að teknu tilliti til bæði forsögu málsins samkvæmt bréfi lögmanns og sanngirnissjónarmiða að rétt sé að samþykkja umsókn Lögmanna Sundagörðum dags. 22. mars 2018, f.h. lóðarhafa, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Kvosarinnar vegna lóðarinnar nr. 3B við Veltusund, samkvæmt beiðni um endurupptöku frá 22. mars 2018.  Í breytingunni felst að heimilt er að vera með gististarfsemi á efri hæðum hússins. Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata bóka: „Umhverfis og skipulagsráð samþykkti í byrjun árs 2015 ákvæði um að hámark hótel- og gistirýmis í Kvosinni mætti ekki vera meira en 23% af fermetrafjölda húsanna á svæðinu. Það stuðlar að nauðsynlegum fyrirsjáanleika fyrir íbúa, uppbyggingaraðila og atvinnulíf. Mikilvægt er að borgaryfirvöld haldi þeirri stefnu sem þarna var tekin. Við teljum mikilvægara að standa vörð um íbúðir fyrir þá sem hér búa og starfa en að fjölga hótel og gistirýmum.“