Lögð fram umsókn
THG Arkitekta ehf.
dags. 30. janúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 25-27 við Sléttuveg og 4-10 við Skógarveg. Í breytingunni felst m.a. fjölgun íbúða við Sléttuveg 27 um 6 eða úr 54 í 60, breyting á gólfkóta í íbúðarhúsum við Skógarveg 4 og 10, bundin byggingarlína við vesturgafl er felld niður, breyting á lóðamörkum vegna göngustígs og breyting á fyrirkomulagi bílastæða samkvæmt uppdr.
THG Arkitekta ehf.
dags. 7. maí 2019.