Kvosin, Landsímareitur, breyting á skilmálum deiliskipulags
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 26
30. janúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn THG Arkitekta ehf. dags. 21. janúar 2019 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Landsímareits. Í breytingunni felst að bætt er við skilmála heimild til að setja flóttastiga í ljósgarð milli Thorvaldsenstrætis 2 og 4-6 út fyrir byggingarreit, samkvæmt tillögu THG Arkitekta ehf. dags. 21. janúar 2019.  Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs (nú skipulags- og samgönguráðs) án staðfestingar borgarráðs.  Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2.ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. 
Gestir
Lilja Grétarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.