Hlíðarendi, kæra 140/2018, umsögn, úrskurður
Hlíðarendi 6 (01.62)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 37
15. maí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 7. desember 2018 ásamt kæru dags. 6. desember 2018 þar sem kærð er ákvörðun borgarráðs frá 25. október 2018 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 18. febrúar 2019. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 17. apríl 2019. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu um ógildingu ákvörðunar borgarráðs Reykjavíkur frá 25. október 2018 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna lóðar A. Kröfu um ógildingu ákvörðunar borgarráðs Reykjavíkur frá 21. desember 2017 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Hlíðarenda vegna lóðar A er vísað frá úrskurðarnefndinni.