Bauganes 1A, breyting á deiliskipulagi
Bauganes 1A (01.672.0)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Einar Sævarsson
Skipulags- og samgönguráð nr. 33
3. apríl, 2019
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Einars Sævarssonar dags. 26. nóvember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Einarsness vegna lóðarinnar nr. 1A við Bauganes. Í breytingunni felst að auka byggingarmagn á lóðinni, þar sem gert er ráð fyrir að byggja við samþykktan bílskúr á norðurenda lóðarinnar og tengja hann við húsið ásamt því að byggja við eldhús, samkvæmt uppdr. Hildar Bjarnadóttur arkitekts dags. 2. nóvember 2018. Einnig er lagður fram tölvupóstur umsækjanda dags. 15. janúar 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 24. janúar 2019 til og með 21. febrúar 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Björk Einarsdóttir dags. 13. febrúar 2019. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. mars 2019.  Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 21. mars 2019. 
Gestir
Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
102 Reykjavík
Landnúmer: 106804 → skrá.is
Hnitnúmer: 10001353