Lögð fram umsókn Helgu Bragadóttur arkitekts f.h.
Nýs Landspítala ohf.
dags. 19. nóvember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýs Landspítala við Hringbraut. Í breytingunni felst að koma fyrir tveggja hæða bílgeymslu undir aðaltorgi/Sóleyjartorgi, sem fær nr. 37. Aðkoma í bílgeymslu verður frá þvergötu austan torgsins milli efri og neðri götu. Breytt er aðkomu við inngang í bráðamóttöku og bílastæðafyrirkomulagi á sunnanverðu Sóleyjartorgi og bílastæðum þar fækkað. Jafnframt er fækkað bílastæðum í bílgeymslu neðanjarðar á reit 35 sunnan geðdeildar o.fl., samkvæmt uppdr. SPITAL dags. 15. nóvember 2018 br. 16. janúar 2019. Einnig er lagt fram minnisblað SPITAL dags. 10. janúar 2019.