Spöngin eining G, Spöngin 3-5/Móavegur 2 og 4, breyting á deiliskipulagi
Spöngin 9
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 35
17. apríl, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Yrki arkitekta ehf. dags. 14. nóvember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Spangarinnar einingu G vegna lóðanna nr. 3-5 við Spöngina og 2 og 4 við Móaveg. Í breytingunni felst að koma fyrir djúpgámum á lóð í stað sorpskýla og hækka hámarkshæð hjólaskýla úr 3,0 m. í 4,5 m., samkvæmt uppdr. Yrki arkitekta ehf. dags. 13. nóvember 2018, síðast breytt 2. apríl 2019. Samþykkt með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs (nú skipulags- og samgönguráðs) án staðfestingar borgarráðs.  Samþykkt að falla frá grenndarkynningu þar sem breyting á deiliskipulagi varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda með vísan til 2.ml. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.