Elliðaárdalur frá Rafstöðvarvegi vestur fyrir Reykjanesbraut, framkvæmdaleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Skipulags- og samgönguráð nr. 34
10. apríl, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram til kynningar umsókn Veitna ohf. dags. 7. nóvember 2018 um framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar veitukerfa í Elliðaárdal frá Rafstöðvarvegi vestur fyrir Reykjanesbraut. Einnig er lögð fram útboðs- og samningsskilmálar og verklýsing ódags., ákvörðun Skipulagsstofnunar dags. 3. september 2018 um matsskyldu, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 29. nóvember 2018, drög að verkáætlun og lokunum dags. 25. janúar 2019 og teikningahefti Veitna ohf. dags. í janúar 2019.  Kynnt. 
Gestir
Björn Ingi Edvardsson verkefnisstjóri, fulltrúi Veitna Hörður Jósef Harðarson og fulltrúi Mannvits Brynjólfur Björnsson taka sæti á fundinum undir þessum lið.