Álmgerði 1, breyting á deiliskipulagi
Álmgerði 1 (01.803.1)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 32
20. mars, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn THG Arkitekta ehf. dags. 7. nóvember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Landspítala Grensásdeildar vegna lóðarinnar nr. 1 við Álmgerði. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður, byggingarmagn og nýtingarhlutfall eykst, hæð viðbygginga til vesturs breytist, bílastæðafjöldi breytist ekki vegna eðlis starfseminnar og gert verði ráð fyrir 31 hjólastæði, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 27. september 2018.  Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Gestir
Guðlaug Erna Jónsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
108 Reykjavík
Landnúmer: 107763 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011546