Vonarstræti 4/Lækjargata 12, breyting á deiliskipulagi
Vonarstræti 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 25
23. janúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Björns Skaptasonar dags. 24. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Lækjargötu 10-12, Vonarstræti 4 og 4b, Skólabrú 2 vegna lóðarinnar nr. 4 við Vonarstræti. Í breytingunni felst að heimilt er að hækka mænishæð á þaki hússins og setja fimm nýja kvisti. Heimilt verður að útbúa fjögur ný hótelherbergi á breyttri þakhæð og mun hæðin samtengjast efstu hæð nýbyggingar er liggur samsíða henni, samkvæmt uppdr. Atelier Arkitekta slf. dags. 24. október 2018. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 19. júní 2018.  Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Svar

Aron Leví Beck víkur af fundi undir þessum lið.