Sundahöfn, norðan Vatnagarða, breyting á deiliskipulagi
Sundahöfn (01.332)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 17
14. nóvember, 2018
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Faxaflóahafna sf. dags. 24. október 2018 ásamt bréfi dags. 24. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vatnagarða vegna Sundahafnar. Í breytingunni felst að skilgreina tvo byggingarreiti á lóð Sægarða 9, stækka og breyta sérskilmálum fyrir lóð Sægarða A og gera nýjar lóðir fyrir dreifistöð Sægarðar 13 og spennistöð Sægarðar 17, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 15. október 2018.  Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til Borgarráðs
Svar

Björn Ingi Edvaldsson tekur sæti undir þessum lið.

104 Reykjavík
Landnúmer: 219172 → skrá.is
Hnitnúmer: 10112520