Dunhagi, Hjarðarhagi, Tómasarhagi, nýtt deiliskipulag
Dunhagi (01.545.1)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 37
15. maí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð er fram að nýju umsókn THG Arkitekta ehf. dags. 2. október 2018 um nýtt deiliskipulag fyrir svæði sem afmarkast af Dunhaga 18-20, Hjarðarhaga 27-33 og Tómasarhaga 32-46. Í tillögunni felst m.a. niðurrif og uppbygging á lóð nr. 18-20 við Dunhaga auk bílskúrsheimilda á tveimur lóðum, samkvæmt deiliskipulagsuppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 11. desember 2018. Einnig er lagður fram  skuggavarpsuppdráttur THG Arkitekta ehf. dags. 1. október 2018, leiðr. 8. febrúar 2019 ásamt skuggavarpi í þrívídd dags.15. apríl 2019.  Jafnframt er lögð fram húsakönnun og fornleifaskráning  Borgarsögusafns Reykjavíkur. Tillagan var auglýst frá 26. febrúar 2019 til og með 9. apríl 2019. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Sigurður Á Þráinsson og Sólveig K Jónsdóttir, Hjarðarhaga 27, dags 1.febrúar, Athugasemdir og undirskriftir 23 aðila að Tómasarhaga 32, Arnargötu 14, Dunhaga 19,21 og 23, Fálkagötu 25, 27 og 34, dags. 7. febrúar 2019, Athugasemdir og undirskriftir 5 aðila að Tómasarhaga 32,34,35,37 og 39, Athugasemdir og undirskriftir frá íbúum og eigendum Hjarðarhaga 27, dags 7. febrúar, Áslaug Árnadóttir f.h. Árna Kolbeinssonar, Tómasarhaga 34, dags. 7. febrúar 2019, Einar Ólafsson, Tómasarhaga 32, dags. 8. febrúar 2019, ASK Arkitektar ehf., Páll Gunnlaugsson, f.h. eigenda tveggja íbúða við Tómasarhaga mótt. 19. mars 2019, Þórný Hlynsdóttir dags. 21. mars 2019, Ásdís Schram dags. 7. apríl 2019, Fannar Jónsson og Elísabet S. Auðunsdóttir dags. 8. apríl 2019, Íbúar og eigendur að Hjarðarhaga 27 dags. 8. apríl 2019, Kolbrún Vaka Helgadóttir og Hilmar Guðjónsson dags. 8. apríl 2019, Eva Björk Valdimarsdóttir dags. 9. apríl 2019, Tómas Hansson, dags, 9. apríl 2019 og athugasemdir og undirskriftalisti 49 aðila dags. 9. apríl 2019. Frestað.
Gestir
Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.