Vesturhöfn, Línbergsreitur, breyting á deiliskipulagi vegna lóðanna nr. 16-32 við Fiskislóð og 39-93 við Grandagarð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 28
13. febrúar, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Faxaflóahafna sf. dags. 19. september 2018 ásamt bréfi dags. 19. september 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar í Örfirisey vegna lóðanna nr. 16-32 við Fiskislóð og 39-93 við Grandagarð. Í breytingunni felst að núverandi húsnæði á reitnum, átta byggingar, sem byggðar voru sem iðnaðarhúsnæði á 9. og 10. áratug síðustu aldar, eru rifnar  og í staðinn reistar tveggja til fimm hæða byggingar fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi, mest skrifstofuhúsnæði, gert er ráð fyrir að svæðinu verði skipt í fimm lóðir/svæði, samkvæmt uppdr. ASK Arkitekta ehf. dags. 18. ágúst 2018. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 11. september 2018 og 13. nóvember 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 3. desember 2018, umsögn samgöngustjóra dags. 18. desember 2018 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 18. desember 2018. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. janúar 2019. Leiðrétt bókun frá fundi skipulags- og samgönguráðs frá 6. febrúar 2019.  Rétt bókun er: Umsögn skipulagsfulltrúa samþykkt.  Vísað til borgarráðs.