Bríetartún 3-5, breyting á deiliskipulagi
Bríetartún 3 (01.22)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Málsaðilar
Skipulags- og samgönguráð nr. 49
25. september, 2019
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn THG Arkitekta ehf. dags. 22. ágúst 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits 1.220.0 vegna lóðarinnar nr. 3-5 við Bríetartún. Í breytingunni felst að stækka byggingarreit til norðausturs og auka nýtingarhlutfall þannig að heimilaðar verði þrjár hæðir með inndregni þakhæð sem snýr að Bríetartúni, en fimm hæðir að aukinni inndregni þakhæð á norðaustur hluta lóðar, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 22. ágúst 2018, síðast breytt 12. september 2019. Einnig er lagt fram bréf THG Arkitekta ehf. dags. 22. ágúst 2018. Tillagan var auglýst frá 28. desember 2018 til og með 8. febrúar 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Veitur ohf. dags. 31. janúar 2019. Einnig lögð fram netsamskipti við Borgarsögusafn vegna húsakönnunar og fornleifaskráningar 28. desember 2018 -15. febrúar 2019. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 8. mars 2019 og 5. september 2019, fornleifakönnun Fornleifastofnunar Íslands ses dags Reykjavík 2019 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. september 2019. Samþykkt sbr. 1.mgr. 42 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. september 2019. Vísað til borgarráðs
Svar

Fulltrúi Sósíalistaflokksins bókar: Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokksins veltir því fyrir sér hvort raunverulega sé þörf á frekari hótel uppbyggingu í Reykjavík á meðan húsnæðismarkaðurinn er jafn slæmur og hann er í dag.

Gestir
Lilja Grétarsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
105 Reykjavík
Landnúmer: 102783 → skrá.is
Hnitnúmer: 10000626