Bríetartún 3-5, breyting á deiliskipulagi
Bríetartún 3 (01.22)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Málsaðilar
Skipulags- og samgönguráð nr. 17
14. nóvember, 2018
Annað
1. fundarliður
2. fundarliður ›
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. ágúst 2018 var lögð fram umsókn THG Arkitekta ehf. dags. 22. ágúst 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Borgartúnsreits 1.220.0 vegna lóðarinnar nr. 3-5 við Bríetartún. Í breytingunni felst að stækka byggingarreit til norðausturs og auka nýtingarhlutfall þannig að heimilaðar verði þrjár hæðir með inndreginni þakhæð sem snýr að Bríetartúni, en fimm hæðir að aukinni inndreginni þakhæð á norðaustur hluta lóðar, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 22. ágúst 2018. Einnig er lagt fram bréf THG Arkitekta ehf. dags. 22. ágúst 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.
Svar

Freyr Frostason frá THG Arkitektum ehf. og Jens Sandholt frá Frímúrarareglunni taka sæti undir þessum lið.

105 Reykjavík
Landnúmer: 102783 → skrá.is
Hnitnúmer: 10000626