Fyrirspurn
Lögð er fram umsókn Studio Granda ehf. dags. 3. maí 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.140.5, Pósthússtrætisreits, vegna lóðarinnar nr. 8 við Lækjargötu. Í breytingunni felst m.a. að einnar hæðar bakbyggingar gamla hússins og skúr við gafl Lækjargötu 6b verði fjarlægðar og endurbyggðar að hluta, byggðar eru 2 hæðir og portbyggt ris með kvistum yfir innkeyrsluramp auk þess sem byggt er upp að gafli Lækjargötu 6b. Gert er ráð fyrir kjallara undir gamla húsinu og nýbyggingu, samkvæmt deiliskipulags- og skuggavarpsuppdr. Studio Granda ehf. dags. 1. október. Jafnframt er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 14. nóvember 2018 og bréf Studio Granda ehf. dags. 22. janúar 2019.