Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Sjómannaskólareitur og Veðurstofuhæð, breyting á aðalskipulagi Reykjavíkur, breytt landnotkun og fjölgun íbúða
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 62
5. febrúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð er fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. í janúar 2020 að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 fyrir Sjómannaskólareit og Veðurstofuhæð. Í breytingunni felst breytt landnotkun og fjölgun íbúða á svæðinu. Einnig er lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 19. ágúst 2019. Tillagan var auglýst frá 30. ágúst 2019 til og með 11. október 2019. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Íbúafélagið Vinir Saltfiskmóans dags. 6. október 2019, Guðrún Steinarsdóttir dags. 8. október 2019, Jóhann Davíð Snorrason dags. 8. október 2019, María Dóra Björnsdóttir dags. 8. október 2019, Karl Thoroddsen dags. 9. október 2019, Perla Dís Kristinsdóttir dags. 9. október 2019, Réttur f.h. Ingu Birgittu Spur dags. 11. október 2019, Réttur f.h. Nóatún 31, húsfélag, dags. 11. október 2019, Sunna Dögg Ásgeirsdóttir dags. 10. október 2019, Lóa Margrét Hauksdóttir ásamt undirskriftarlista dags. 11. október 2019, Marcos Zotes dags. 11. október 2019, Kristinn Pálsson dags. 11. október 2019, Gerður Sveinsdóttir f.h. Húsfélagsins Skipholti 44-50 dags. 11. október 2019 og Vinir Vatnshólsins dags. 1. október 2019 ásamt undirskriftarlista 261 aðila. Einnig eru lagðar fram umsagnir frá eftirfarandi stofnunum: Bláskógabyggð dags. 5. september 2019, Kópavogsbær dags. 5. september 2019, Garðabær dags. 23. september 2019, Ölfus dags. 7. október 2019, Veðurstofa Íslands dags. 10. október 2019, Vegagerðin dags. 14. október 2019 og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu dags. 30. desember 2019. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs dags. 23. janúar 2020. Samþykkt sbr. 1. og 2. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn deildarstjóra aðalskipulags dags. 23. janúar 2020.  Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá. Vísað til borgarráðs.
Svar

Fulltrúar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Pírata bóka:

Gestir
Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.