Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030, Sjómannaskólareitur og Veðurstofuhæð, breyting á aðalskipulagi Reykjavíkur, breytt landnotkun og fjölgun íbúða
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 56
4. desember, 2019
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu eru lagðar fram til kynningar innsendar athugasemdir við tillögu umhverfis- og skipulagssviðs dags. í júní 2019 uppf. 22. ágúst 2019 fyrir breytingu á aðalskipulagi fyrir Sjómannaskólareit og Veðurstofuhæð.Í breytingunni felst breytt landnotkun og fjölgun íbúða á svæðinu. Einnig er lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 19. ágúst 2019. Tillagan var auglýst frá 30. ágúst 2019 til og með 11. október 2019. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Vinir Vatnshólsins dags. 1. október 2019 ásamt undirskriftarlista 261 aðila, Íbúafélagið Vinir Saltfiskmóans dags. 6. október 2019, Guðrún Steinarsdóttir dags. 8. október 2019, Jóhann Davíð Snorrason dags. 8. október 2019, María Dóra Björnsdóttir dags. 8. október 2019, Karl Thoroddsen dags. 9. október 2019, Perla Dís Kristinsdóttir dags. 9. október 2019, Réttur f.h. Ingu Birgittu Spur dags. 11. október 2019, Réttur f.h. Nóatún 31, húsfélag, dags. 11. október 2019, Sunna Dögg Ásgeirsdóttir dags. 10. október 2019, Lóa Margrét Hauksdóttir ásamt undirskriftarlista dags. 11. og 22. október 2019, Marcos Zotes dags. 11. október 2019, Kristinn Pálsson dags. 11. október 2019 og Gerður Sveinsdóttir f.h. Húsfélagsins Skipholti 44-50 dags. 11. október 2019. Einnig eru lagðar fram umsagnir frá eftirfarandi stofnunum: Bláskógabyggð dags. 5. september 2019, Kópavogsbær dags. 5. september 2019, Garðabær dags. 23. september 2019, Ölfus dags. 7. október 2019, Veðurstofa Íslands dags. 10. október 2019 og Vegagerðin dags. 14. október 2019. Kynnt 
Svar

Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins bókar: 

Gestir
Haraldur Sigurðsson deildarstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.