Árbæjarblettur 62/Þykkvibær 21, kæra 10/2018, umsögn, úrskurður
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 32
20. mars, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 24. janúar 2018 ásamt kæru mótt. 22. janúar 2018 þar sem kærð er breyting á deiliskipulagi Árbæjar - Seláss vegna lóðarinnar Árbæjarblettur 62/Þykkvabær 21. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 13. mars 2018. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 14. mars 2019. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar borgarráðs Reykjavíkur frá 14. september 2017 um að samþykkja breytingu á deiliskipulagi Árbæjar - Seláss vegna lóðarinnar Þykkvabæjar 21.