Laugavegur 59, kæra 128/2017, umsögn, úrskurður
Laugavegur 59 (01.173.0)
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 19
28. nóvember, 2018
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 27. október 2017 ásamt kæru, þar sem kærð er synjun á leiðréttingu og deiliskipulagsbreytingu vegna Laugavegar 59. Einnig er lögð fram umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 27. júní 2018. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. frá 15. nóvember 2018. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að fella úr gildi ákvörðun borgarráðs Reykjavíkur frá 28. september 2017 um að synja umsókn um breytingu á deiliskipulagi vegna lóðar nr. 59 við Laugaveg í Reykjavík.
101 Reykjavík
Landnúmer: 101506 → skrá.is
Hnitnúmer: 10017581