Héðinsreitur, reitur 1.130.1, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 37
15. maí, 2019
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Héðinsreit. Breytingin nær til byggingarreita, byggðamynsturs, lóðamarka, hæða húsa og starfsemi á jarðhæðum. Felld er úr gildi byggingarheimild fyrir hjúkrunarrými og heimild bætt inn fyrir samsvarandi byggingarmagn undir íbúðir og heimild er sett inn fyrir hótel við Seljaveg, samkvæmt uppdr., greinagerð og hönnunarhandbók dags. 20. desember 2018. Einnig er lögð fram húsakönnun Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 17. desember 2018. Tillagan var auglýst frá 28. janúar 2019 til og með 11. mars 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Björgólfur Thorsteinsson f.h. Húsfélagsins Vesturgata 69-75 dags. 8. mars 2019, Sif Jónsdóttir dags. 10. mars 2019, Árný E. Sveinbjörnsdóttir f.h. íbúa í 301, Vesturgötu 73, dags. 10. mars 2019, Stefanía Helga Skúladóttir dags. 11. mars 2019, Guðrún Birna Brynjarsdóttir dags. 11. mars 2019, Hafþór Óskarsson, Unnsteinn Jóhannsson, Helga Arnardóttir, Bryndís Brandsdóttir, Birna Óskarsdóttir, Úlfar Gíslason og Marta Valgeirsdóttir dags. 11. mars 2019, Steinþór Þorsteinsson dags. 11. mars 2019, Íbúasamtök Vesturbæjar dags. 11. mars 2019 og Sveinn Sigurður Kjartansson dags. 12. mars 2019. Einnig er lögð fram umsögn Veitna dags. 29. mars 2019, umögn Vegagerðarinnar dags. 4. apríl 2019, umsögn Heilbirgðiseftirlits Reykjavíkur dags. 4. apríl 2019 og umsögn Faxaflóahafna dags. 9. apríl 2019. Jafnframt eru lagðir fram lagfærðir uppdrættir Jvantspijker og Teikn arkitektaþjónustu dags. 20. desember 2018, síðast breytt 10. maí 2019 og lagfærð greinargerð Jvantspijker og Teikn arkitektaþjónustu dags. 20. desember 2018 síðast breytt 10, maí 2019. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. maí 2019. Samþykkt með þeim breytingum sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 10. maí 2019. Vísað til borgarráðs.
Gestir
Jón Kjartan Ágústsson verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.