Hverfisskipulag, Árbær 7.2 Árbær, tillaga
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 49
25. september, 2019
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga að hverfisskipulagi Árbæjar, hverfi 7.2 Árbær dags. 14. desember 2018, br. 12. september 2019 ásamt almennri greinargerð og stefnu dags. 14. desember 2018, br. 12. september 2019 og skipulagsskilmálum dags. 14. desember 2018, br. 12. september 2019. Tillagan var auglýst frá 2. febrúar 2019 til og með 17. mars 2019. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Guðmundur H. Einarsson mótt 17. mars 2019. Einnig sendu eftirtaldar stofnanir inn umsagnir: Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur dags. 20. mars 2019, Skipulagsstofnun dags. 29. mars 2019 og Veitur dags. 22. mars 2019. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. september 2019. Samþykkt sbr. 1.mgr. 42 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með þeim breytingum sem koma fram í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. september 2019. Vísað til borgarráðs
Svar

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins bóka: Hverfisskipulag er til þess fallið að einfalda stjórnkerfið og auka gagnsæi fyrir íbúa um rétt þeirra í hverfunum. Að loknu ítarlegu samráðsferli hefur verið ákveðið að falla frá heimild til að reisa fjölbýlishús við Birtingarkvísl. Það er jákvætt að hér hafi verið komið til móts við þann vilja íbúana.

Gestir
Ævar Harðarson verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.