Afgreiðslufundir skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, fundargerð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 44
21. ágúst, 2019
Annað
Fyrirspurn
Lagðar fram fundargerðir embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 19. júlí til 16. ágúst 2019.  Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins bókar: 
Svar

Bókun vegna liðs nr.1 – Fundargerð Skipulagsfulltrúa frá 9.ágúst 2019, liður 7.Úlfarsfell Fulltrúi Miðflokksins leggst alfarið gegn fyrirhuguðum framkvæmdum á einum vinsælasta útsýnisstað borgarinnar og vísar í fyrri bókanir vegna málsins. Eftirtekt vekur hversu hart Reykjavíkurborg hefur gengið fram í þessu máli þvert gegn vilja íbúa Úlfarsárdals,Grafarholts sem og íbúa borgarinnar almennt. 50m hátt stálmastur hlaðið tækjabúnaði og allt það fargan sem því fylgir skal nú reist, þvert gegn vilja íbúa. Fyrir liggur að hér er um að ræða hagsmuni einkafyritækis, ekki íbúa. Fyrir liggur að Úlfarsfell er EKKI talinn besti kostur, þar trónir efst á lista Þverfellshorn í Esju og Bláfjöll,þar sem fyrir er sendir frá öðru fyrirtæki, þykir og góður kostur. Það er því alvarlegt mál að því fullyrt sé að þetta sé eina færa leiðin. Fjöldi athugasemda í kjölfar auglýsingar téðs deiliskipulags var slíkur að elstu menn muna ekki annað eins. Það er tillaga Miðflokksins að þessari aðför að ljúki hér og sú gríðarlega andstaða sem fram kemur í aðsendum athugasemdum í kjölfar auglýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir verði virt. Tilgangurinn með auglýsingum af þessu tagi, er að fá fram vilja borgaranna og hann er skýr: Nei takk. Jafnframt mælist undirritaður til þess að núverandi óleyfisbúnaður verði fjarlægður tafarlaust.