Skrifstofuhúsnæði úr krosslímdum timbureiningum
Hestháls 15
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 820
14. maí, 2021
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. apríl 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. apríl 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja einnar hæðar skrifstofuhús úr krosslímdum timbureiningum ásamt auglýsingaskiltaturni við innkeyrslu á lóð nr. 15 við Hestháls. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. maí 2021.
Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2020. Erindi fylgja útreikningar á varmatapsramma dags. 19. mars 2021 og greinargerð hönnunarstjóra um ábyrgðarsvið hönnuða ódagsett. Stærð, mhl. 01: 139,8 ferm., 378,4 rúmm. Gjald kr. 12.100
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. maí 2021, samþykkt með skilyrðum og leiðbeiningum.

110 Reykjavík
Landnúmer: 174591 → skrá.is
Hnitnúmer: 10064918