staðsetning ökutækjaleigu
Sævarhöfði 2-2A
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 623
3. mars, 2017
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. febrúar 2017 var lagt fram bréf Samgöngustofu, dags. 15. febrúar 2017, þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa á umsókn Ernu Gísladóttur f.h. BL ehf., um að reka ökutækjaleigu að Sævarhöfða 2. Sótt er um leyfi fyrir 57 ökutækjum í útleigu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. mars 2017.
Svar

Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 2. mars 2017, samþykkt.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110556 → skrá.is
Hnitnúmer: 10055769