stækkun lóðar
Sogavegur 3
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 537
8. maí, 2015
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. mars 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta viðbyggingu á suðurhlið sem verður kæliklefi í atvinnuhúsi á lóð nr. 3 við Sogaveg. Erindi var grenndarkynnt frá 26. mars til og með 23. apríl 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Rannveig Jónsdóttir dags. 19. apríl 2015, Ingi Leifsson og Jónas Leifsson dags. 22. apríl 2015, Baldur Ingvi Jóhannsson dags. 22. apríl 2015 ásamt athugasemd við fyrri kynningu.
Stækkun: 26,1 ferm., 62,8 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.

108 Reykjavík
Landnúmer: 107820 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018591