framkvæmdaleyfi
Miklabraut við Rauðagerði
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 644
11. ágúst, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. júlí 2017 var lögð fram umsókn Veitna ohf. , mótt. 19. júlí 2017, ásamt bréfi, dags. 19. júlí 217, um framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar stofnlagnar fyrir kalt vatn frá nýju lokahúsi Veitna við Stigahlíð þvert yfir Kringlumýrarbrautina að mislægum gatnamótum við Kringluna, samkvæmt teikningum Veitna og Verkís, dags. 30. maí 2017. Einnig er lagt fram bréf Vegagerðarinnar, dags. 10. júlí 2017. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. júlí 2017. Erindið er lagt fram að nýju ásamt leiðréttri umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2017 og minnisblaði Veitna dags. 3. ágúst 2017.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2017. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.