framkvæmdaleyfi
Vallarás - Elliðaárdalur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 745
27. september, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. september 2019 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 18. september 2019 um framkvæmdaleyfi vegna gerð nýs göngu- og hjólastígs ásamt upphækkaðri gönguþverun yfir Vallarás. Einnig er lagt fram teikningasett umhverfis- og skipulagssviðs dags. í september 2019. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 23. september 2019.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 23. september 2019 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.3 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1231/2018.