breyting á deiliskipulagi
Brautarholt 26-28
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 643
28. júlí, 2017
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Karls Mikla ehf., mótt. 21. mars 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skipholtsreits vegna lóðanna nr. 26 og 28 við Brautarholt. Í breytingunni felst að bætt er við takmörkuðum byggingarreit við norðurhliðar Brautarholts 26 og 28 og við austurhlið Brautarholts 26 fyrir svalir og leyfilegt verður að koma fyrir þaksvölum á 2. hæð Brautarholts 28 með tengingu við bæði húsin. Fyrirhugað er að breyta efri hæðum hússins í íbúðir að hámarki 30 eða gistirými/hótel. Á jarðhæðum er að finna verslunar-, þjónustu- og geymslurými, samkvæmt uppdr. T.ark Arkitekta ehf., dags. 16. mars 2017. Einnig er lagt fram bréf T.ark Arkitekta ehf., dags. 21. mars 2017. Tillagan var auglýst frá 13. júní 2017 til og með 25. júlí 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar