Reiðhjólaskýli - til bráðabirgða
Lækjargata 5 Menntaskólinn
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 559
23. október, 2015
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. október 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu, mhl. 10 á baklóð MR yfir á lóðir nr. 2, 2B, 4 og 4B við Amtmannsstíg, tengja þær saman og innrétta fyrirlestrarsal, bókasafn, íþróttahús og aðstöðu fyrir nemendur á lóð nr. 5 við Lækjargötu.
Erindi fylgir bréf frá ÖBI dags. 6. febrúar 2009, umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 31. janúar 2005, útskrift úr fundargerð Húsafriðunarnefndar frá 13. febrúar 2009 og greinargerð hönnuðar dags. 28. september 2015. Einnig umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 8. október 2015, leiðnitapsútreikningur dags. 12. október 2015 og brunahönnun dags. 9. október 2015. Stærð mhl. 10: 4.689,9 ferm., 17.766,7 rúmm. Niðurrif: Casa Christi: 860 ferm., 9.150 rúmm. Anddyri Casa Nova: 10 ferm., 27 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

Landnúmer: 101665 → skrá.is
Hnitnúmer: 10126356