nr. 6 - staðsetning ökutækjaleigu
Viðarhöfði 4-6
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 693
10. ágúst, 2018
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. júlí 2018 var lagt fram bréf Samgöngustofu dags. 23. júlí 2018 þar sem óskað er eftir umsögn vegna umsóknar Hjörleifs Björnssonar f.h. Icerental 4x4 ehf. um að reka ökutækjaleigu að Viðarhöfða 6. Sótt er um leyfi fyrir 350 ökutækjum í útleigu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1. ágúst 2018..
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags.1. ágúst 2018.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110687 → skrá.is
Hnitnúmer: 10014463