breyting á deiliskipulagi
Úlfarsárdalur, reitur E
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 591
1. júlí, 2016
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn skrifstofu Eigna og atvinnuþróunar, dags. 24. júní 2016 um framkvæmdaleyfi fyrir göngu og hjólastíg frá Fellsvegi að Dalskóla skv. uppdráttum VSÓ, dags. 20. maí 2016. Til verksins heyrir einnig smíði brúar yfir Úlfarsá. Jarðvegsskipta skal undir stígum og undirstöðum brúa, leggja jöfnunarlag og malbika. Smíða skal 20m langa límtrésbrú og byggja tilheyrandi undirstöður. Meðfram stígum skal koma fyrir ljósastreng og reisa ljósastólpa/ljósapolla. Um miðbik svæðisins skal gera áningastað og koma fyrir búnaði ásamt gróðursetningu við áningastað.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gr. 5. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.