breyting á deiliskipulagi
Úlfarsárdalur, reitur E
Síðast Vísað til verkefnisstjóra á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 767
27. mars, 2020
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð er fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi fyrir Úlfarsárdal útivistarsvæði vegna 1.áfanga Korpulínu jarðstreng. Vegna breytinga á aðflutningskerfi Landsnets á milli tengivirkjanna við Korpu og á Geithálsi, þá er gert ráð fyrir tilfærslu á Korpulínu 1 og nýrri legu hennar í jarðstreng sem mun liggja meðfram Reynisvatnsvegi norðanmegin, um 30 m frá veginum milli hringtorgsins við Fellsveg og Lambhagaveg og einnig mun jarðstrengurinn liggja yfir dalinn og Úlfarsá austanmegin Lambhagavegar í Úlfarsárdal. Lagður verður nýr 132 kv jarðstrengur í stað núverandi loftlínu sem verður fjarlægð eftir spennusetningu strengsins, samkvæmt uppdr. VSÓ ráðgjafar dags. 16. desember 2019 br. 25. mars 2020. Tillagan var auglýst frá 30. janúar 2020 til og með 12. mars 2020. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Veitur dags. 12. mars 2020. Einnig er lögð fram skýrsla Borgarsögusafns Reykjavíkur um fornleifaskráningu fyrir lagnaleið dags. 20. febrúar 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. mars 2020 og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. mars 2020.
Svar

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. mars 2020 með vísan til a. liðar 2. gr. í viðauka 2.3 um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa nr. 1020/2019.