breyting á deiliskipulagi
Stakkholt 2-4
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 489
2. maí, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Þorvalds Gissurarsonar dags. 7. mars 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hampiðjureits vegna lóðarinnar nr. 2-4 við Stakkholt. Í breytingunni felst að breyta legu kvaðar um aðkomu og umferð frá Þverholti og inn um lóðina Stakkholt 2-4, samkvæmt uppdr. THG Arkitekta ehf. dags. 28. janúar 2014. Tillagan var grenndarkynnt frá 28. mars til og með 28. apríl 2014. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.

105 Reykjavík
Landnúmer: 103018 → skrá.is
Hnitnúmer: 10035408