Breytingar inni - gluggar
Grettisgata 22C
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 822
28. maí, 2021
Synjað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 21. maí 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. maí 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi í kjallara og á 1. hæð sem felast í að fjarlægja stiga á milli hæða, kjallara er skipt upp í tvö rými sem verða vinnustofur í eigu íbúðar og komið er fyrir glugga á norðurhlið og í þaki auk þess sem pallur fyrir utan stækkaður, á húsi á lóð nr. 22C við Grettisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. maí 2021.
Gjald kr. 12.100
Svar

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 26. maí 2021.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101835 → skrá.is
Hnitnúmer: 10011575