Breyting á matshluta
Laufásvegur 22
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 634
2. júní, 2017
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. maí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að skipta í tvær eignir þannig að mhl. 03 verður vinnustofa með áður gerðri íbúð á neðri hæð og mhl. 01 verður áfram einbýlishús, einnig er sótt um að deila lóðinni upp í tvo sérafnotareiti og stækka svalir á mhl. 01 til vesturs á húsi á lóð nr. 22 við Laufásveg.
Gjald kr. 11.000
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við uppskiptingu lóða. Lagfærðir uppdrættir verða grenndarkynntir berist þeir.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101968 → skrá.is
Hnitnúmer: 10015900