(fsp) nr. 4 - hækkun húss um eina hæð
Skeifan 2-6
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 759
24. janúar, 2020
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. janúar 2019 var lögð fram fyrirspurn Erum Arkitekta ehf. dags. 16. desember 2019 ásamt bréfi dags. 12. september 2019 um hækkun á suðurhluta hússins að Skeifunni 4, lóð nr. 2-6 við Skeifuna, um eina hæð, samkvæmt uppdr. Erum Arkitekta ehf. dags. 21. september 2019. Einnig er lagt fram samþykki meðeigenda ódags. mótt. 16. desember 2019. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2020.
Svar

Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2020 eru ekki gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.