Nýbygging með íbúðum og veitingastöðum
Veltusund 3B
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 591
1. júlí, 2016
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Balance ehf. dags. 20. júní 2016 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar vegna Veltusunds 3B samkvæmt uppdr/teikningu Arkís dags. 16. júní 2016. Í breytingunni felst endurnýjun byggingar í porti og hvort byggingarmagn samræmist gildandi deiliskipulagi eða hvort þurfi að grenndarkynna.
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.