breyting á deiliskipulagi
Skólavörðustígur 16
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 733
21. júní, 2019
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. apríl 2019 var lögð fram umsókn Kristjáns Bjarnasonar dags. 26. mars 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.0 vegna lóðarinnar nr. 16 við Skólavörðustíg. Í breytingunni felst að porti suðvestan til í húsinu er lokað að hluta og komið fyrir flóttastiga. Við breytinguna hækkar nýtingarhlutfall lóðarinnar, samkvæmt uppdr. Arkitektastofunnar Austurvöllur ehf. dags. 2. febrúar 2019 br. 20. apríl 2019. Einnig er lagt fram samþykki hluta meðlóðarhafa dags. 28. desember 2017. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Óðinsgötu 1, Skólavörðustíg 16a.