framkvæmdaleyfi
Breiðholtsbraut
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 618
27. janúar, 2017
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Landmótunar, dags. 27. september 2016, að deiliskipulagi opins svæðis milli Seljahverfis og Efra Breiðholts þar sem er lagt til að gerð verði göngubrú yfir Breiðholtsbraut ásamt viðeigandi göngu- og hjólatengingum um skipulagssvæðið. Göngubrú mun bæta til muna tengingu og umferðaröryggi gangandi og hjólandi vegfaranda á leið milli hverfanna. Einnig er lagt fram minnisblað Verkfræðistofunnar Eflu, dags. 23. nóvember 2015, varðandi úttekt um valkosti staðsetningar fyrir göngubrú, en til grundvallar lágu þrjár útfærslur á brú. Tillagan var auglýst frá 7. desember 2016 til og með 23. janúar 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Óðinn Snær Ragnarsson, dags. 16. janúar 2016, Bjarni Valur Guðmundsson, dags. 20. janúar 2017. Einnig er lögð fram umsögn Landssamtaka hjólreiðamanna, dags. 20. janúar 2017, tölvupóstur Vegagerðarinnar, dags. 12. janúar 2017og umsögn Minjastofnunar Íslands, dags. 24. janúar 2017.
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.