breyting á deiliskipulagi
Alþingisreitur
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 714
1. febrúar, 2019
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. janúar 2019 var lögð fram umsókn Batterísins Arkitekta ehf. dags. 15. janúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Alþingisreits. Í breytingunni felst að tengigangur á 2. hæð milli Skála (Kirkjustræti 12) og nýbyggingar á horni Vonarstrætis og Tjarnargötu er breytt þannig að brot kemur á hann á móts við tengibyggingu í Kirkjustræti 8B og gengur hann þaðan á ská yfir reitinn að Nýbyggingu, skarð í nýbygginguna að Vonarstræti sem gengur inn að inngarði er stækkað og lóðarmörk vestan Vonarstrætis 10 eru færð um 60 cm. þannig að lóðin minnkar um 15 fm., samkvæmt uppdr. Batterísins Arkitekta ehf. dags. 8. janúar 2019. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til skipulags- og samgönguráðs.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 8.1 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.