breyting á deiliskipulagi
Alþingisreitur
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 671
2. mars, 2018
Engar athugasemdir
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. febrúar 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. febrúar 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja skrifstofuhús sem tengir og sameinar alla starfsemi Alþingis, með aðstöðu fyrir fundahöld, móttökur og ráðstefnur á Alþingisreit. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 21. febrúar 2018 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. mars 2018.
Erindi fylgir brunahönnun frá Eflu dags. 24. janúar 2018. Stærð, mhl. 01, A-rými: 7.914,6 ferm., 31.073,4 rúmm. B-rými: 130,7 ferm. Mhl. 03, Kirkjustræti 4, A-rými: 787,9 ferm., 2.767,9 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. mars 2018.