breyting á skilmálum deiliskipulags
Hverfisgata 123
Síðast Vísað til Skipulags- og samgönguráðs á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 683
1. júní, 2018
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. maí 2018 var lögð fram umsókn Helga Hafliðasonar dags. 15. maí 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skúlagarðsreits vestari, Hlemmur+ vegna lóðarinnar nr. 123 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst að heimilt er að koma fyrir einni hæð ofan á núverandi útbyggingu á baklóð með aðgangi um svalagang frá stigahúsi og setja svalir á götuhlið, samkvæmt uppdr. Helga Hafliðasonar arkitekts dags. 31. maí 2018. Einnig er lagður fram skuggavarpsuppdr. dags. 31. maí 2018. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Hverfisgötu 117, 119, 121 og 125. Rauðarárstígur 13.
Vakin er athygli á að umsækjandi þarf að greiða fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7.6. gr. sjá gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.