Viðbygging/hæð
Básendi 2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 859
4. mars, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. nóvember 2021 þar sem sótt er um leyfi til að hækka rishæð og innrétta stækkun íbúðar á 1. hæð, gera svalir á 1. hæð og klæða að utan með lerki einbýlishús á lóð nr. 2 við Básenda, samkvæmt uppdr. alt arkitekta ehf. dags. 29. október 2021. Einnig er lagt fram skuggavarp alt arkitekta ehf. dags. 7. janúar 2022. Erindi var grenndarkynnt frá 27. janúar 2022 til og með 24. febrúar 2022. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.

108 Reykjavík
Landnúmer: 108382 → skrá.is
Hnitnúmer: 10006893