breyting á deiliskipulagi
Austurbæjarskóli
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 381
3. febrúar, 2012
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Framkvæmda- og eignasviðs dags. 22. september 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skólavörðuholts vegna lóðar Austurbæjarskóla. Í breytingunni felst að gerður er nýr byggingarreitur fyrir færanlegar kennslustofur, samkvæmt uppdrætti Hornsteina dags. 22. september 2011. Tillagan var auglýst frá 16. desember 2011 til og með 1. febrúar 2012. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagt fram tölvubréf frá Hverfisráði Miðborgar dags. 5. janúar 2011 þar sem ekki er gerð athugasemd við tillöguna.
Svar

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.