(fsp) loftræstiklefi
Sléttuvegur, Hrafnista
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 684
8. júní, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. maí 2018 var lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 14. maí 2018 um framkvæmdaleyfi vegna lagningu á nýjum botnlanga að húsunum nr. 8 og 10 við Skógarveg á lóð Hrafnistu við Sléttuveg, samkvæmt uppdr. dags. 4. maí 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. júní 2018.
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags.8. júní 2018. Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.2 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.