breyting á deiliskipulagi
1.171.1 Hljómalindarreitur
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 426
11. janúar, 2013
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Laugavegsreita ehf. dags. í júní 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hljómalindareit 1.171.1. Í breytingunni felst uppbygging á svokölluðum Hljómalindarreit samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdrátta studíó Granda dags. 7. september 2012. Skipulagssvæðið afmarkast af Hverfisgötu, Klapparstíg, Laugavegi og Smiðjustíg. Hagsmunaaðilakynning stóð til og með 4. október 2012. Athugasemdir og ábendingar bárust. Einnig er lögð fram bókun Húsafriðunarnefndar frá 18. október 2012, umsögn Húsafriðunarnefndar dags. 23. október 2012 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 6. nóvember 2012. Tillagan var auglýst frá 21. nóvember 2012 til og með 4. janúar 2013. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir : Bréf frá "Miðborginni ykkar" dags. 12. nóvember 2012, Máni Sær Viktorsson ódags,, Haukur Í. Jóhannsson dags. 18. nóvember 2012, Páll Þorsteinsson dags. 21. nóvember 2012 og Íbúasamtök Miðborgar dags. 11. desember 2012
Svar

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs