Endurnýjun þaks og stækkun
Rafstöðvarvegur 41
Síðast Engar athugasemdir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 826
25. júní, 2021
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. júní 2021 þar sem sótt er um leyfi til breytinga á formi og burðarvirki þaks, endurnýjunar á þakklæðningu, klæðning útveggja breytt í málmklæðningu, uppsetning á tveimur rafhleðslustöðvum við bílastæði og breyting gerð á innra skipulagi í húsi nr. 41 á lóð nr. 41 við Rafstöðvarveg.
Stærð hússins eftir lagfærða skráningu verður: 111,7 ferm., 397,5 rúmm. Erindi fylgir yfirlit breytinga unnið á samþykktum uppdrætti, umsögn skipulags dags. 7. maí 2014, bréf hönnuðar dags. 27. maí 2021. Gjald kr. 12.100
Svar

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

110 Reykjavík
Landnúmer: 110978 → skrá.is
Hnitnúmer: 10077440